Karlakór Hreppamanna fagnaði 20 ára afmæli sl. vor með veglegum afmælistónleikum. Þessi tuttugu ár hafa liðið ógnarhratt og sagt er, ef að mönnum finnst svo vera, þá sé skýringin sú að það hafi verið gaman. Toppurinn á þessu afmælisári, fyrir utan vortónleikaröðina, var ferð kórsins til Munchen í Þýskalandi dagana 13. – 17. október, skömmu eftir hina miklu bjórhátíð Oktoberfest. arnarhreidridwEinhverjir félaganna í kórnum höfðu talsverðar áhyggjur af því að bjórþurrð gæti verið á þessu svæði eftir hátíðina. Það reyndist þó ekki vera okkur til mikils léttis. Þessa daga var brakandi blíða í suður Þýskalandi svo að það var gott að geta svalað þorstanum með bjór. Það getur líka verið nauðsynlegt að væta kverkarnar ef mikið er sungið, sem við gerðum óspart eða í hvert sinn sem á leið okkar urðu tveir eða fleiri Þjóðverjar. Já mikið var sungið og og margt var skoðað en uppúr stendur ferð okkar í Arnarhreiðrið eða Kehlsteinhaus sem byggt var 1938 og var gjöf Þriðja ríkissins til Hitlers á fimmtugsafmæli hans. Húsið stendur á fjallstoppi í 1834 metra hæð og þaðan er stórfenglegt útsýni. Við vorum heppin, stafalogn og heiðskír himinn svo útsýnið var óskert og svo mikið að Gylfi Þorkelsson fékk snert af heimþrá er honum sýndist glytta í fjöllin heima:

Nú er hugur norður frá,
nýtir frjáls vindana.
Héðan Arnarhreiðri frá
hyllir Kálfstindana.

Við erum nokkuð vissir um að söngur kórsins þarna uppi heyrðist til a.m.k. þriggja landa; Þýskalands, Austurríkis og jafnvel Ítalíu því undir tók í fjöllunum. Hádegisverður var svo snæddur í Schönau am Königssee, en til þess að komast þangað þurfti að sigla yfir Königssee sem er annað dýpsta vatn Þýskalands. Þarna er mikil náttúrufegurð sem naut sín vel í veðurblíðunni.

Þessi ferð var einstaklega vel heppnuð í alla staði og verður lengi í minnum ferðafélaganna höfð. Gylfi orti þessa á heimleiðinni;

Nú er komið napurt haust
og nokkuð fölur kórinn.
Það er ekki þrautarlaust
að þamba svona bjórinn.

Þrátt fyrir þessi skemmtilegu tuttugu ár taldi Edit Molnár, stjórnandinn okkar frá upphafi og stofnfélagi,  að nú væri tími kominn á að fá nýjan stjórnanda fyrir kórinn. Kórfélagarnir voru þessu ekki sammála en þessari ákvörðun var ekki haggað. Við félagarnir kveðjum Edit með söknuði og miklu þakklæti fyrir frábært og óeigingjarnt starf hennar í þágu kórsins. Hún hefur verið vakin og sofin yfir velferð kórsins alla tíð og afar metnaðarfull sem ljóslega kemur fram í þeim verkefnum sem kórinn hefur tekist á við í gegnum tíðina, nægir að nefna;  „Liszt í 200 ár“ tónleikar tileinkaðir ungverska tónskáldinu Franz Liszt, óperutónleikar þar sem kórinn spreytti sig á ýmsum perlum úr þekktum óperum og lög eftir Sigurð Ágústsson frá Birtingaholti sem komu út á geisladisk árið 2007. Eiginmaður Editar, Miklós Dalmay, sá mikli snillingur, hefur verið píanóleikari kórsins öll árin sem Edit hefur stjórnað kórnum og er hans framlag til kórsins ómetanlegt.

gudmundur oliweKórinn hefur nú fengið nýjan stjórnanda Guðmund Óla Gunnarsson, sem gert hefur garðinn frægan á norðurlandi. Guðmundur Óli nam hljómsveitarstjórn í Utrecht og Helsinki. Hann var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá 1992-2013. Hann var fastur stjórnandi kammersveitarinnar Caput 1987-2007 og starfaði sem hljómsveitarstjóri hjá Íslensku óperunni 2012-2016. Guðmundur Óli hefur verið stjórnandi ýmissa kóra, þeirra á meðal eru Kór MS, Kór MA, Háskólakórinn og Karlakór Dalvíkur. Þá er hann stjórnandi Kammerkórs Norðurlands. Hann er nú skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi. KKH hefur miklar væntingar til samstarfsins við Guðmund Óla og nú er lag fyrir nýja söngmenn að mæta á æfingu hjá kórnum sem væntanlega byrjar að æfa nýtt lagaprógram á næstu æfingu. Æft er á þriðjudögum kl. 20:00 í Félagsheimili Hrunamanna.


Hér er hægt að skoða myndir frá Þýskalandsferðinni (Ljósm.: Áslaug Bjarnad.)

Þorleifur Jóhannesson