Kórstjóri

Atli Guðlaugsson er stjórnandi Karlakórs Hreppamanna og býr á Tindum á Kjalarnesi, ásamt eiginkonu, sonum og þeirra fjölskyldum. Þar stunda þau hobbýbúskap. Atli er trompetleikari og söngvari og lauk blásarakennarprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Atli starfaði sem tónlistarkennari frá 1977 og þar af sem skólastjóri tónlistarskóla í 35 ár í Tónlistarskólanum á Akureyri, Tónlistarskóla Eyjafjarðar, Tónskóla Eddu Borg og síðast í Listaskóla Mosfellsbæjar í 17 ár. Atli var stjórnandi Lúðrasveitar Akureyrar í 18 ár og Hljómsveitar félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð í 15 ár. Þá hefur hann stjórnað Karlakór Akureyrar, Karlakór Eyjafjarðar, Karlakórnum Stefni, Grundartangakórnum og Sprettskórnum (áður Gustskórnum). Atli hefur samið lög og texta og útsett mikið fyrir karlakóra og sönghópa.

Sem tónlistarmaður hefur hann alltaf verið virkur trompetleikari og sungið í og stjórnað eftirfarandi sönghópum: Karlakvintettinum Galgopum í Eyjafirði, Borgarkvartettinum og Tindatríóinu.

Tindatríóið hefur verið starfandi frá 2003 og er skipað Atla og sonum hans, Bjarna og Guðlaugi. Þeir Bjarni og Guðlaugur hófu báðir sinn karlakórsferil 16 ára gamlir og hafa lokið framhaldsprófi í söng frá Listaskóla Mosfellsbæjar. Þeir eru einsöngvarar með Karlakór Hreppamanna í vetur og hafa oft komið fram sem einsöngvarar með kórum, í fjölmörgum útförum og brúðkaupum í kirkjum landsins og við ýmiss önnur tækifæri, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

Stjórnendur Karlakórs Hreppamanna frá stofnun:

2021 – Atli Guðlaugsson
2017 – 2021 Guðmundur Óli Gunnarsson
1997 – 2017 Edit Molnár (og jafnframt aðalhvatamaður að stofnun KKH)

 

Píanóleikari

Ekki er fastráðinn píanóleikari eins og er, hvað sem seinna kann að verða.

karlakr1w

Píanóleikarar Karlakórs Hreppamanna frá stofnun:

1997 – 2017 Miklós Dalmay