Hafið, fiskveiðar og sjómennska hafa verið stór hluti af  þjóðarsál Íslendinga um aldir. Þrautseigja og hetjudáðir sjósóknara í gegnum tíðina hafa lifað með þjóðinni í sögum, ljóðum og sönglögum um þessa dáðu stétt sem dregið hefur björg í bú en jafnframt fært miklar fórnir í baráttu sinni við hafið.

Karlakór Hreppamanna hefur söngárið 2013-14 undirbúið tónleika undir heitinu „Nú sigla svörtu skipin“,sem er óður til hafsins og sjómennskunnar. Titillinn vísar í lag Karls Ó. Runólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar. Mörg af stórbrotnustu kórverkum íslenskra tónbókmennta eru einmitt ort til sjóhetjanna, en sjómannalög eru líka dillandi létt með grípandi laglínum. Slík lög munu sóma sér vel meðal hinna dramatísku á tónleikadagskrá kórsins nú í vor.

Stjórnandi Karlakórs Hreppamanna er Edit Molnár og undirleikari Miklós Dalmay

Til að gera viðfangsefninu enn betri skil hefur kórinn fengið til liðs við sig Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóra og Magnús Guðmundsson leikara sem unnið hafa, upp úr frásögnum, ljóðum og þjóðsögum af þessu meginsviði íslenskrar menningar, handrit sögumanns sem fléttað verður við sönginn.

Miðasala á tónleikana í Gamla bíó hefst í dag á midi.is

Auglýsing í pdf.

KKH-2014-page-001w